Skartgerðarkvöld GJAFABRÉF
Skartgerðarkvöld GJAFABRÉF
Couldn't load pickup availability
viltu búa til þinn eigin skartgrip eða búa til persónulega gjöf fyrir einhvern annan og eiga rólega og skapandi kvöldstund á vinnustofunni okkar?
~gjafabréfið gildir fyrir einn á skartgerðarkvöld 2026✨
~þegar gjafabréfið er keypt kemur staðfestingarpóstur með númeri sem hægt er að nota við bókun á skartgerðarkvöldunum en einnig er hægt að koma og fá gjafabréfið útprentað í umslagi.
Skartgerðarkvöldið er frá 19:30-21:30 og innifalið í gjaldinu er einn skartgripur, en hægt er að gera fleiri gripi sem greitt er fyrir á staðnum. Einnig er innifalið kaffi og sódavatn.
Á skartgerðarkvöldinu verður í boði að búa til hina ýmsu gripi úr miklu úrvali af ferskvatnsperlum, náttúrusteinum, charms, glerperlum og sirkon steinum meðal annars.
Hafdís aðstoðar og verður með leiðsögn í helstu aðferðum skartgerðarinnar.
Hafdís kláraði 2 ár í gull- og silfursmíði í tækniskólanum og starfaði við skartgripagerð í verslun í 2 ár. Hafdís er núna í myndlistakennaranámi við Háskóla Íslands.
Fullkomið fyrir saumaklúbbinn, vinkonuhópinn, vinnuna eða einstaklinga/pör 💛
Velkomið er að koma með eigin drykki, áfenga eða óáfenga.
Share
